Landvernd, í samstarfi við önnur náttúruverndarsamtök, boðar til grænnar göngu sumardaginn fyrsta í Reykjavík
Auglýsing viðburðarins á síðu Landverndar:
Sumardagurinn fyrsti 2026 verður tileinkaður náttúru Íslands á allan hátt!
Þá munum við öll ganga fyrir náttúruna og framtíðina.
Þetta verður baráttudagur náttúrunnar sem byrjar með öflugri grænni göngu í anda kröfugöngunnar miklu 2013. Öll náttúruverndarhreyfingin í landinu vinnur hörðum höndum að stærstu náttúrugöngu sem haldin hefur verið í fjölmörg ár.
Fólk safnast saman við Arnarhól klukkan 13:30 og við byrjum að ganga niður í Hljómskálagarðinn klukkan 14:00. Í Hljómskálagarðinum tekur á móti okkur hvatning til þess að halda náttúrunni okkar sem hæst á lofti í öllum málum því hún á nú undir högg að sækja og hún þarf fleiri raddir.
Við viljum að rödd náttúrunnar heyrist yfir holt og hæðir þennan dag og blási lífi í íslenska náttúruvernd inn í sumarið.
Ljóð tileinkað þessum degi íslenskrar náttúru:
Íslensk náttúra
Eyjan sem ól mig alls fyrir löngu,
ekkert er alveg eins og þú.
Við göngum í dag þína gleðigöngu
því gífurleg þörfin er nú.
Skref ég vil stíga á þessum degi,
til að sjá og muna þig,
en minnast þess líka að ég megi
ekki missa þig, fyrir mig.
Því þú geymir árnar svo iðandi,
þú geymir lækina líðandi,
fjöllin svo fagnandi,
fuglana fljúgandi,
þú geymir sólina sígandi.
Þú geymir rokið svo rífandi,
þú geymir skordýrin skríðandi,
kuldann svo kælandi,
þokuna þvælandi,
en líka birtuna, blíðandi.
Þú geymir vötnin svo vætandi,
þú geymir blómin svo bætandi,
grösin svo gefandi,
sönginn þinn, sefandi,
á vorin, með hitann hækkandi.
Þú geymir fossana freyðandi,
þú geymir sæinn svo seiðandi,
gæsirnar gargandi,
hreindýrin hlaupandi,
þú geymir hálendið, heilandi.
Af þessu má sjá það sem satt er
og ég segi það hátt og snjallt hér:
Ég á allt mitt undir þér
og eftirfarandi því ég sver.
Að tign þinni ég aldrei skal týna,
tryggð við þinn málstað æ sýna
og þegar lífs mitt ljós mun dvína,
vil ég leggjast í moldina þína.
Guðrún Óskarsdóttir