Málstofa um áhrif vindorkuvera á náttúru

Málstofa um áhrif vindorkuvera á náttúru verður haldið á Egilsstöðum 3. apríl. Ljósmynd: Skarphéðinn G. Þórisson. Snæfell.

Náttúruverndarsamtök Austurlands og Landvernd bjóða til málþings um áhrif vindorkuvera á náttúru.

Markmið fundarins er að fræðast um þau áhrif sem þessi aðferð til orkuöflunar kemur til með hafa á íslenska náttúru. Sérfræðingar á mismunandi sviðum munu flytja erindi og setjast í lok fundar í pallborð þar sem tekið verður við spurningum úr sal.

Fundurinn verður haldinn í Sláturhúsinu á Egilsstöðum fimmtudaginn 3. apríl kl. 19:00 og mun formaður umhverfis- og skipulagsráðs Múlaþings einnig veita upplýsingar um það sem sveitarfélagið hefur verið að vinna að í tengslum við vindorkumöguleika og nýtt aðalskipulag.

Öllum er boðið að koma og fræðast með okkur. Boðið verður upp á léttar veitingar.

Dagskrá:

19:00 Setning fundar
19:05 Þorvarður Árnason: Vindorkuvæðing Íslands – áhrif á landslag og víðerni
19:20 Vigdís Freyja Helmutsdóttir: Áhrif vindorkuvera á búfénað og gróðurfar
19:35 Jóhann Óli Hilmarsson: Fuglar og vindmyllur, rannsóknir og áhrif
19:50 Stutt kaffihlé
20:00 Andrés Skúlason: Áhrif á umhverfi og samfélag
20:15 Jónína Brynjólfsdóttir: Vindorkunýting á forsendu sveitarstjórna
20:30 Pallborðsumræður
21:00 Fundi slitið

Fundinum verður streymt en aðeins fólki í sal býðst að bera fram spurningar

Scroll to Top