Vorferð með Náttúruskólanum

vorferd 2026 nattaust.is

Tengsl og töfrar – komdu með út í náttúruna. Vorferð

 

Náttúruverndarsamtök Austurlands NAUST og Nátturuskólinn standa fyrir fræðslu- og fjölskylduferðum á næstu mánuðum.

Sunnudaginn 17. maí kynnumst við æðarvarpinu og ævintýralandinu við Teigarhorn og bregðum okkur að Blábjörgum í sandsköpun og fjölskyldujóga í fjörunni.

Hist við Teigarhorn kl. 10.00, klædd til útivistar og með nestisbita.

Engin skráning eða þátttökugjöld, bara mæta með góða útiveruskapið.

Um er að ræða upplifunarferðir í náttúruna þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur á öllum aldri kynnist betur náttúrunni og eigin nærumhverfi, skapi minningar og njóti samveru í og með náttúrunni, fræðist um og heillist af mikilfengleika hennar í stóru og smáu.

Lagt er upp með að fólk komi sér sjálft á staðinn en njóti leiðsagnar þar.

Scroll to Top