Aðalfundur NAUST og fræðsluganga 23. ágúst 2026

Skalanes

Aðalfundur Náttúrverndarsamtaka Austurlands 2026 verður haldinn á Skálanesi í Seyðisfirði sunnudaginn 23. ágúst næstkomandi

Á dagskrá eru fræðsluganga um svæðið undir leiðsögn staðarhaldara og venjuleg aðalfundarstörf

Boðið verður upp á snarl milli göngu og fundar

Rúta ferjar þátttakendur frá Herðubreið á Seyðisfirði kl. 10 og til baka um kl. 16 (en fólk getur auðvitað líka sameinast í jeppa og keyrt sjálft)

Hlekkur á viðburðinn á Facebook

Dagskrá

  • 10:00 Brottför frá Herðubreið á Seyðisfirði
  • 10:30 Fræðsluganga um Skálanes
  • 12:00 Hádegishressing
  • 13:30 Aðalfundur
  • 16:00 Brottför frá Skálanesi

Dagskrá aðalfundar

  1. Formaður setur fund, kosning fundarstjóra og fundarritara
  2. Skýrsla stjórnar, formaður flytur
  3. Ársreikningur lagður fram til samþykktar, gjaldkeri
  4. Lagabreytingar (engar)
  5. Kosning stjórnar
  6. Ákvörðun árgjalds
  7. Ályktanir
  8. Önnur mál

 

Drög að ályktunum fundar

 

Líffræðileg fjölbreytni

Nýlega birtu stjórnvöld nýja stefnu um líffræðilega fjölbreytni og kynntu drög að aðgerðaáætlun stefnunnar. NAUST sendi inn umsögn um aðgerðaáætlunina, þar sem bent var á að hún skorti víða þann metnað sem birtist í stefnunni sjálfri. Samtökin lögðu m.a. áherslu á skýrari skuldbindingar, mælanleg markmið og raunverulegar verndar- og endurheimtaraðgerðir, svo tryggja megi að markmiðum stefnunnar verði náð fyrir árið 2030. Einnig var bent á mikilvæga þætti sem vantaði í áætlunina, t.a.m. aðgerðir tengdar fræðslu, innleiðingu hringrásarhagkerfis, áhrifa mengunar og verndar tegunda. Aðalfundur NAUST 2026 skorar á stjórnvöld að vinna metnaðarfulla og skýra aðgerðaráætlun um þetta mjög svo mikilvæga málefni.

 

Sjókvíaeldi

Á liðnu ári kynntu stjórnvöld drög að nýjum lögum um lagareldi og um leiðarmerki og öryggi siglinga. Náttúruverndarsamtök Austurlands sendu inn umsagnir um bæði frumvörpin þar sem bent var á verulega annmarka á því hvernig vernd náttúru, almannahagsmuna og öryggis væri tryggð.

Samtökin leggja áherslu á að lagarammi um lagareldi verði að byggjast á varúðarreglu og tryggja að vernd vistkerfa, villtra laxastofna og líffræðilegrar fjölbreytni njóti forgangs þegar hagsmunir náttúru og atvinnustarfsemi fara ekki saman. Þá telur NAUST óásættanlegt að veikja vernd siglingaleiða og helgunarsvæða vita með víðtækum undanþáguheimildum, meðal annars vegna sjókvíaeldis.

Fundurinn skorar á stjórnvöld að móta löggjöf um lagareldi sem byggist á vísindalegri þekkingu og langtímahagsmunum samfélagsins, þar sem náttúruvernd, siglingaöryggi og aðrir almannahagsmunir ganga framar skammtímahagsmunum einstakra atvinnugreina.

 

Vindorkuáform

Aðalfundur NAUST 2026 varar við stórtækum áformum um vindorkuver á starfs­svæði samtakanna, sem er jafnvel að finna á víðáttumiklum votlendissvæðum upp til heiða, við anddyri Vatnajökulsþjóðgarðs. Samtökin hafa þungar áhyggjur af framtíð heiðalanda fjórðungsins, sem eru í dag nýttar af bæði mönnum og dýrum á margvíslegan hátt. Bygging vindorkuvers krefst margvíslegra innviða svo sem vega og athafnasvæða. Þessir innviðir myndu skerða og raksa verulega votlendi á heiðum, sem er á skjön við þá stefnu að endurheimta votlendi. Vegna mikilvægi heiða í náttúru­legu og menningarlegu samhengi hvetur aðalfundur NAUST stjórnvöld til að vinna að verndun þeirra gegn uppbyggingu vindorku.

Vindorkuáform eru einnig á láglendi og NAUST sendi nýlega inn umsögn um umhverfismatsskýrslu varðandi fyrirhugaða reisingu tveggja vindtúrbína við Lagarfossvirkjun. Samtökin telja að umhverfismat framkvæmdarinnar vanmeti áhrif á fuglalíf, landslag og votlendi og skorti varúð vegna óvissu um ýmis umhverfisáhrif sem og fullnægjandi vöktun og mótvægisaðgerðir. Aðalfundur NAUST 2026 skorar á Skipulagsstofnun og Múlaþing að tryggja að ákvarðanir um vindorkuuppbyggingu byggist á vönduðu og heildstæðu mati á áhrifum á náttúru, landslag og líffræðilega fjölbreytni.

 

Hamarsvirkjun

Nýlega samþykkti Alþingi breytingar á verndar- og orkunýtingaráætlun þar sem ákveðið var m.a. að setja Hamarsvirkjun í biðflokk, þrátt fyrir að verkefnisstjórn 5. áfanga rammaáætlunar hefði lagt til að virkjunarkosturinn færi í verndarflokk. NAUST sendi inn umsögn um breytinguna og aðalfundur NAUST 2026 lýsir yfir þungum áhyggjum af þessari ákvörðun. Það vekur ugg hve oft var farið með rangar staðreyndir í umræðum um málið á Alþingi, t.d. var því haldið fram að það hafi aðallega verið náttúruverndarsamtök sem hafi lýst yfir andstöðu við það að færa Hamarsvirkjun úr vernd í bið, þegar hið rétta er að ríkisstofnanir með sérfræðingum á þessu sviði tóku líka undir niðurstöðu verkefnisstjórnar rammaáætlunar, líkt og sjá má í öðrum umsögnum um málið. Fundurinn skorar því á stjórnvöld að standa vörð um sjálfstæði og trúverðugleika rammaáætlunar og tryggja að ákvarðanir um nýtingu og vernd náttúru byggist á vísindalegum forsendum fremur en pólitískum skammtímasjónarmiðum.

 

Orkuframleiðsla og -nýting

Líkt og á síðustu aðalfundum hvetur NAUST til almennrar umræðu um orkumál og áform um aukna orkuvinnslu á Austurlandi. Forsenda þess að ráðast í nýjar virkjanir er að fyrir liggi hver raunveruleg þörf sé samhliða mati á orkudreifingu og orkunýtingu. Landsnet hefur bent á að ekki sé ávinningur af því að virkja frekar á Austurlandi vegna veikleika í byggðalínunni og að taka þurfi upp kerfi sem nýtir orkuna betur, því það er ekki einungis umhverfisvænt heldur líka hagkvæmt. Aðalfundur NAUST tekur undir þetta og hvetur stjórnvöld til að setja í forgang aðgerðir til að minnka tap og fullnýta þá raforku sem nú þegar er búin til í landinu.

Á meðan ekki er til heild­stæð stefna hvað varðar orkuframleiðslu og -nýtingu hér á landi, er hætta á því að fjársterkir aðilar, oft erlendir, spilli náttúru landsins til þess eins að selja orkuna hæstbjóðanda. Slíkur iðnaður kemur orkuskiptum ekki við, heldur ýtir aðeins undir þá ofneyslu og sóun auðlinda sem hefur komið okkur í þá alvarlegu stöðu sem við erum í dag í umhverfis­málum. Þess vegna kallar aðalfundur NAUST 2026 eftir því að heildstæð stefna í bæði orkuframleiðslu, -dreifingu og -nýtingu verði unnin fyrir Austurland og Ísland allt.

 

Vernd og endurheimt vistkerfa

Náttúra Austurlands og Íslands alls á undir högg að sækja vegna ýmis konar áhrifa okkar, sem þó eigum allt okkar undir henni. Aðalfundur NAUST 2026 hvetur stjórnvöld til að efla vernd og endurheimt vistkerfa um land allt með markvissum aðgerðum. Fundurinn leggur áherslu á að ákvarðanir um nýtingu lands og náttúru byggist á vísindalegri þekkingu, varúðarreglu og langtímahagsmunum samfélagsins.

Að lokum minnir fundurinn á að vernd og endurheimt náttúrunnar eru ekki aðeins forsenda þess að stöðva hnignun líffræðilegrar fjölbreytni heldur líka mikilvæg fjárfesting samfélagsins í sjálfbærri auðlindanýtingu og lífsgæðum til framtíðar.

 

Ljósmynd með frétt: Skarphéðinn G. Þórisson

Scroll to Top