Aðalfundur NAUST var haldinn 23.ágúst sl. í Skálanesi Seyðisfirði. Aðalfundur var sameinaður fræðsluferð um svæðið, en Skálanes er náttúru- og menningarsetur, þar sem staðsett er alþjóðleg vísindaleg rannsóknarstöð á sviði náttúru- og menningar. Ekið var með rútu frá Seyðisfirði úr í Skálanes. Staðalhaldarar gengu með fundargestum um svæðið og sögðu frá náttúrufari og sögu. Að loknum ljúffengum hádegisverði var gengið til aðalfrundar og voru líflegar umræður og fjölmargar ályktanir samþykktar.
Lesa má fundargerð aðalfundar Aðalfundargerð NAUST 2026
Aðalfundur NAUST 2026

